Þóra Geirlaug er Borgfirðingur undir meðalhæð sem hefur vandræðalega sterkar skoðanir á skáldskap og gamanvísum. Helst er það talið mér til tekna að vera úr sveit og að faðir minn elskulegur hafi ort hinar ódauðlegu línur “hæ hó jibbí jeij”. Sá mun heita Bjartmar Hlynur, einnig á ég móður sem hefur með þolinmæði og seiglu kennt dóttur sinni að prjóna, elda kjötsúpu og raka saman heyji. Eftir grunnskólapróf frá hinni merku menntastofnun Kleppjárnsreykjaskóla lá leiðin í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi þar sem ég náði mér í svona líka fína húfu. Náði mér reyndar líka í leikhúsbakteríu og söngbakteríu sem höfðu verið grasserandi lengi. Háskóli Íslands tók við af FVA þar sem BSc gráðu í líffræði með séráherslu á hornsíli var landað vorið 2009. Kennsluréttindin í kjölfarið. Fyrir utan beisik hlutina er ég víst með eindæmum pólitísk, vinstri sinnaður sófakommi, með óbilandi áhuga á prjónaskap, mjólk, ljósmyndun og Borgarfirði…