Hamborgarhryggurinn er á leið í ofninn, ananasfrómasinn í ísskápnum, appelsínugulu filtkúlurnar komnar á jólatréð og amma er sofnuð með bók á andlitinu, þetta eru jólin fyrir mér. Síðustu ár hef ég eytt aðventunni í próflestur, þar sem jólaundirbúningi var hespað af á tveimur dögum,en metnaðurinn lá í því að hafa sem flottast innpakkaðar jólagjafir og baka smá, handgera jólakort og njóta svo aðventunnar. Samt koma alveg jól, þrátt fyrir að kartonið og glimmerið sé enn sitt í hvoru lagi og minni ekki á jólakort hið minnsta og síðasta jólaskrautið var sett upp núna áðan. Mín jól eru frábrugðin hinum hefðbundnu jólum, við t.d. hlustum ekki á jólin hringd inn og klukkutíminn á milli fimm og sex á aðfangadag einkennist ekki af jólabaði og matseld, honum er eytt í undirbúning fyrir fjós og mjaltir.
Jólaskapið stóð á sér í ár, stress í námi og vinnu og almennt hár stressstuðull er þar um að kenna. Þrátt fyrir að hafa farið í Ikea fann ég ekki jólin þar, Smáralind 22. desember bjó svo sannarlega ekki yfir jólaandanum og það var hífandi rok þegar ég í þrjóskukasti þrammaði Laugaveginn í leit að jólagjöfum og jólaskapi. En jólaskapið er að detta inn, það kom með skötuilminum í gær og verður fullkomnað þegar ég verð í gripahúsunum kl 6.
Bróðir minn er heilmikil mannvitsbrekka og afskaplega gott að leita til hans með ýmis vandamál. T.a.m. hefur hann aðstoðað við þau sambúðaslit sem ég hef gengið í gegnum, í fyrra skiptið flutti hann mig út og í seinna skiptið skaut hann sambýlinginn (það eru víst að koma jól svo betra er að halda því til haga að um kött var að ræða í seinna skiptið). Eitt sinn kom hann bróðir minn heim á Þorláksmessu og ofur spennta systir hans spurði hann; ertu ekki kominn í jólaskap? Hann svaraði; nei til hvers, það kemur. Á þessari stundu fannst mér bróðir minn hinn mestu gleðispillir að vera ekki kominn í rjúkandi jólaskap þrátt fyrir að Helga Möller væri búin að raðsyngja um aðfangadagskvöld og snjó og krap síðan snemma í desember og það var meira að segja búið að baka mömmukökurnar. Í seinni tíð hef ég þó skilið þessi orð bróður míns betur, jólaskapið kemur, sama hvort maður finnur það á Laugaveginum, Ikea, kirkjum eða útihúsum.
Að því sögðu óska ég ykkur gleðilegra jóla, ég er farin í fjós