Höfundur: bustolpi á 18 ágúst, 2009
jæja, lítið heyrst frá mér síðustu mánuði, þetta eru svona beisik hlutirnir sem hafa á daga mína drifið;
- kláraði Bs með herkjum ásamt tímamótaverkinu; Fæðuval hornsíla í kjölfar sinubruna (áhugasamir hafi samband við mig uppá að fá eintak)
- Hélt útskriftarveislu í sveitinni
- vann og vann og vann á Nátkóp við hornsíladót
- fékk synjun um skólavist við HÍ
- fór í fýlu og sótti um í HA
- flaug þar inn og mun hefja nám í kennslufræðum til kennsluréttinda á meistarastigi í byrjun september
- mun því vera með reglulegar ferðir til Akureyrar í vetur á milli þess sem ég læri eins og vindurinn
- landaði aukavinnu hjá Reykjavíkurborg, verð háttvirtur starfsmaður Selsins í Melaskóla
og fleira var það ekki
Skrifað í Uncategorized | 1 ummæli »
Höfundur: bustolpi á 4 mars, 2009
Jæja, er að vinna í plöntuvistfræðiverkefni sem er svo heillandi að ég ákvað að tékka á blogginu mínu. Síðustu dagar hafa einkennst af eynd og volæði á stuðgrandanum, ég ber ábyrgð á hvorutveggja þar sem ég krækti mér einhverja ódöngun sem lýsir sér í almennum slepjuskap. Með umhyggjusamri hjúkrun ástmannsins, óheyrilega miklum svefni og slatta af how I met your mother þáttum hef ég hinsvegar náð kröftum á ný og stefni á það að mæta í skólann á morgunn. Ofan á slappleika minn, geðveikina í skólanum bættist svo ódöngun í báðum bílum heimilisins (já ég veit, tveir bílar eru mjög 2007 en við erum pínu eftir á), hondilac var sóttur í gær fulllagaður og heyrist nú í honum eins og kettlingi á 5. viku en Pierre kom heim áðan.
Að öðru, hornsílin eiga enn hug minn allan og koma til með að eiga það nokkuð áfram þar sem næsta sumar fer ég í áframhaldandi athuganir á fæðuvali hornsíla í kjölfar óheyrilega mikils sinubruna. Var einmitt með plaggat á fræðaþinginu, það tróðst svosem enginn undir við plaggatið mitt, en engu að síður var gaman að sýna svona smá hvað ég er að bralla. Plaggatið er á stærð við meðaldverg á unglingsaldri og hefur vakið mikla athygli innan heimilis sem og utan. Ónefndur bróðursonur minn vildi nota þetta sem virki en ég held að ég afþakki það annars góða boð. Siggi er ekki alveg jafn hrifinn af minni hugmynd varðandi geymslustað fyrir plaggatið, en ég held að það færi ljómandi vel fyrir ofan stofusófann, sófinn er einmitt svona sinubrúnn á litinn. Þetta verður rætt seinna.
Skólinn rýkur áfram eins og strútur á spítti, á eftir að skila af mér einum fyrirlestri og einni ritgerð í sambó (besti áfangi í heimi) og þá er hann bara kviss bamm búmm búinn. Enn er beðið eftir rannsóknarverkefninu mínu úr yfirlestri, ritgerðin verður vonandi tilbúin áður en niðurstöðurnar verða úreltar. Ég stefni einmitt á að gefa hana út í nokkrum eintökum fyrir næstu jól, selja innbundna í kálfskinn í Bitanum, tölusett og árituð af höfundi. Það að skólinn rjúki áfram hefur eitt óhjákvæmilega í för með sér, BSc námi mínu í líffræði fer að verða lokið. Sjæse, einhvern vegin hafði ég ekki alveg hugsað út í það , en þrjú ár líða víst bara svona hratt. Framtíðin er því örlítið á huldu af því að jú maður dettur ekki beint í vinnu hvar sem er núna. Planið er því að fara í kennó í haust og ná sér í réttindi til kennslu í framhaldsskóla. Ég á eftir að fitta vel þar inn…. sjor. En ég segi þetta þá gott í bili og ætla að snúa mér aftur að áhrifum á samsetningu gróðurs á frædreifingu fugla.

Skrifað í Uncategorized | 4 ummæli »
Höfundur: bustolpi á 4 desember, 2008
Já, líf mitt snýst þessa dagana um það hvað blessuð hornsílin á Mýrum borðuðu fyrstu mánuðina eftir sinubruna. Reyndar er þetta málefni alveg að hætta að vera spennandi, t.d. vegna óhuggulega lítils tíma sem er eftir af önninni og þessum helv. prófum sem læðast upp að manni. Prófin líta þó ekki eins hræðilega út og síðustu annir þar sem ég er vopnuð blómadropum og ilmkjarnaolíum, best í heimi. Ef ég fer svo í master var ég að spá í að fá mér seiðkarl og norn líka, svona til að passa sérstaklega vel upp á mann. Ritgerðin semsagt lúsast áfram og ég sé grínlaust fram á að ná að klára hana fyrir jól, sem er ekkert nema töff.
Eitt próf búið, tók tilraunadýr og vísindarannsóknir í lok nóvember og held að ég hafi ekki verið svona mikið með á nótunum í prófi síðan einhvern tíman í fjölbraut, sem er mjööög næs. Svo er næsta próf 11. og svo 16 og 17. des. Þá hugsa ég að taki við skýrslu fínpússning og svo heim í sveitina. Þá tekur við skötuát mikið og svo leti
. En þangað til kem ég til með að halda mig uppi á þriðju hæð Öskju í öruggu vari í mastersaðstöðunni. Nú þarf ég nefnilega ekki að standa í blóðugum slagsmálum við eitthvað aðkomupakk um pláss. Askja er alveg rosalega vinsæl bygging, þá gildir einu hvort um er að ræða sálfræðinema, hjúkrunarfræðinema, menntaskólanema (hversu vitlaus þarftu að vera til þess að stelast til að nota aðstoðu háskólanema í peysu merktri menntaskólanum þínum) eða ráðstefnugesti. Í dag og á morgun er tildæmi afskaplega spennandi ráðstefna um margmiðlun í safnastarfi, sem mér þætti mjög áhugavert og skemmtilegt, ef að tilgangurinn væri að létta okkur lundina í próflestri. Það væri óneitanlega mjög töff að geta rölt niður á fyrstu hæð í pásum, skoðað ljósmyndir og allskonar dót. En nei, ráðstefnum fylgir nefnilega fólk, og ekkert lítið af því. Ég gæti sko haldið þónokkuð lengi áfram að tala um hversu fáránleg stjórnun þessarar blessuðu menntastofnunar væri, en ég ætla ekki að gera það, ég treysti bara Steinunni til að skrifa um það
ooooog bless
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »
Höfundur: bustolpi á 3 nóvember, 2008
Jæja, búin að taka mér góða pásu og einbeitti mér á meðan að tengslum mínum erlendis auk þess að ég var soldið í skólanum. Tími minn fram að jólum held ég að verði mest megnis Boðagrandi- Askja- Kópavogur og svo Askja kannski smá á milli. Rannsóknarverkefnið er orðið risavaxið og sér ekki fyrir endann á ýmsum miður skemmtilegum uppákomum því tengdu. En nú sér fyrir endann á sýna vinnslu og jafnvel, jafnvel get ég byrjað að skrifa í þessari viku! Jeij.
Annars fórum við skötuhjú sumsé til Burra 9. október, á afmælisdegi uppáhaldsbróður míns. Sem er jú uppáhalds vegna þess að hann er eini bróðir minn, en góður engu að síður. Komum heim 5 dögum seinna gjörsamlega úthvíld með fulla myndavél af minningum. Mjöl gott. Sáum alveg helling, fórum í dýragarð, kastala og svo undir borgina sem var… u áhugavert en ég stórefast um að ég komi til með að ryðjast þangað í framtíðinni. Það er víst ástæða fyrir því að Edinborg er talin vera sú evrópska borg sem hefur hvað mestan draugagang, gaman að því. Síðast en alls ekki síst hittum við hana Sólu sem sýndi okkur alveg helling af borginni auk þess sem hún sá til þess að við frestuðum megrun amk til heimfarar. Síðan þá hefur tíminn farið í skóla, heimalærdóm og verkefnagerð. Ég er farin að hlakka svooooo til jólanna þar sem í fyrsta skipti síðan í fjölbraut kem ég til með að eiga 7 daga aðventu!! ég verð semsagt búin í prófum 17. des. Að vanda verður Siggi búinn á eftir mér. Það hefur nefnilega ekki klikkað síðan við byrjuðum saman (4 ár í október, lúmskt laumað að) að ég er ALLTAF búin á undan honum í prófum, sem mér finnst doldið fyndið…. honum, ekki eins. Próftaflan er reyndar aðeins á reiki eins og stendur en það er fast í hendi að ég verð í prófum 11. 16 og 17. Það er örlítil framför frá síðasta haustmisseri. Bara smá. Ef allt gengur svo upp núna kem ég til með að eiga 11 einingar eftir til að taka í vor. Gleði gleði, þá má ég víst fara að kalla mig líffræðing, frá og með júní 2009. Það hræðir mig reyndar pínu vegna þess að í fyrsta skipti síðan guðmávitahvenær veit ég eiginlega ekkert hvað mig langar að gera eftir það, jæks. Það kemur bara í ljós, fæ mér þá bara vinnu í banka, það vantar alltaf þjónustufulltrúa og svoleiðis
Annars ætla ég að setja hér inn öööörfáar myndir úr Edinborg, þær eru reyndar líka inn á fésbók….

Systkinin sameinuð á ný á sænsku kaffihúsi að súpa sér kaffisopa, og hvað eru mörg S í því

Við í sleik í kastala, reyndar fannst mér Siggi láta mig um alla vinnuna, en vottahell

Svona gerist þegar maður fer með tvær sveitastúlkur í kastala

Glaður bavíani, það var nú einu sinni sunnudagur
Skrifað í Uncategorized | 4 ummæli »
Höfundur: bustolpi á 7 október, 2008
já, það er ekki eitt, heldur allt. Fyrst hrundi Pierre, svo hrundi efnahagskerfið og loks er búið að setja geðdeild lansanns í viðbragðsstöðu. Munurinn á hruni Pierre og efnhagskerfisins er þó soldill, í fyrsta lagi, Pierre hrundi afþví bara, glætan að gengið sé í fokki afþví bara. Pierre hrundi líka allt í einu, á góðu strolli upp í Kópavog, ekki af því það var verið að leggja of mikið á hann, hann er jú bara franskur smábíll og er því ekkert í fjallaferðum. Hann Pierre þekkir nefnilega sín takmörk. Viðbröðgin voru þó svipuð, dálítið panikk, grátur og taugaveiklun (þ.e. af minni hálfu), sem og björgunaraðgerðirnar. Þá stóðum við Pierre þó betur að vígi heldur en íslenska ríkið. Þegar ríkisstjórnin bað um hjálp frá könunum þá höfðu þeir bara fengið fingurinn (skv ekkert mjög svo áreiðanlegum samfylkingarmanni). Ég hinsvegar naut góðs af því að hafa alist upp við hliðina á bifreiðaverkstæði Þórðar Stefánssonar, eiga alveg bestu foreldra í heimi, voða góðan kærasta ekki síðri tengdafjölskyldu. Með samhentu átaki þessara aðila er því Pierre kominn heim í rannsóknir, eftir þær kemur í ljós hvort að hann verður seldur í brotajárn, eða hvort að farið verður í meiriháttar aðgerð við að bjarga honum. Svona svipað og með krónugreyið. Edinborgarferð aldarinnar hefst svo eftir nokkra tíma, við fljúgum út á fimmtudagsmorgun, og um hádegi á fimmtudag á að byrja að rigna…. í Edinborg. Það finnst mér ekki alveg nógu töff, en það verður bara að hafa það. En jæja, nú ætla ég að klára þennan ógurlega spennandi kafla um nýru og fara svo upp í Kópó og tékka á hausnum. Endilega að kíkja þangað við tækifæri, það er ekki á hverjum degi sem færi gefst á að sjá risaskjaldbökuskeljar og haus, á sama stað, hér á landi meira að segja, aðgangur er meira að segja alltaf ókeypis

Skrifað í Uncategorized | 2 ummæli »
Höfundur: bustolpi á 17 september, 2008
Jahá, síðustu tímana hef ég setið við og lært dýralífeðlisfræði eins og vindurinn, eða ekki. Er alveg ógurlega illa upplögð í lærdóm og langar mest til að liggja undir sæng og gera ekkert. Enda er lægð yfir landinu. Helsta gleðiefni mitt er þó nýja kaffivélin í Öskju. Þetta er algjör snilld!! við erum að tala um að þegar maður velur sér kaffi með MJÓLK, þá fær maður aktjúallí mjólk. Oh, æðislegt. Svo er líka hægt að fá swiss mocca og bara nefndu það. Þvílíkt dásemdarlíf. Annars gerist lítið nema á milli lífeðlisfræðitarna tek ég hornsílatarnir og skrifa skýrslu eins og jú, mikið rétt, eins og vindurinn. En nú skal haldið áfram, forspennan bíður ekki eftir manni:

oooooobless
Skrifað í Uncategorized | 2 ummæli »
Höfundur: bustolpi á 11 september, 2008
og svo man ég ekki meir. er búin að sitja við í allan dag að reyna mitt besta til þess að skrifa færðilega grein um fæðuvistfræði hornsíla. Um leið langar mig til að gera nákvæmlega allt annað, t.d. baka, skúra, búa um rúmið….. allt annað. Verst er þó að í gær voru síðustu flíkurnar þvoðar sem voru skítugar, þannig að það er ekki einu sinni hægt að þvo þvott.
Af heilsufari mínu er allt fínt að frétta, ég er hætt að vera gangandi hér um eins og horskrímslið ógurlega og hef fengið venjubundið litaraft mitt aftur, sem er gott, þar sem að ég hafði gert heiðarlega tilraun til að líta skárr út með því að mála mig, það var slæm hugmynd þar sem eftir alltof stuttan tíma leit ég út eins og týndi meðlimurinn úr Kiss. slæmt, mjög slæmt. Mætti samt í skólann í gær og ég held svei mér þá að þetta hafi verið erfiðasti fyrirlestur sem ég hef setið.
En núna ætla ég að halda áfram að skrifa eitthvað gáfulegt, þó svo ég nenni því ekki, af því að ég er hörkutól, að amk… ætla að telja sjálfri mér trú um það. oh, Ignorance is a bliss
Skrifað í Uncategorized | 4 ummæli »
Höfundur: bustolpi á 9 september, 2008
Jæja, ég var búin að fá nett leið á bloggar síðunni, auk þess sem ég sit heima annan daginn í röð og leiðist sem aldrei fyrr. Ég gerði nefnilega þá reginskyssu að fara út á laugardagskvöldið, eftirköstin eru ennþá að ganga yfir. Krapp. Annars er mest lítið að frétta, á milli þess sem ég sýg upp í nefið, snýti mér eða hósta hef ég aðallega sofið, amk þangað til að ég vakna upp grútstífluð af hori, já geðslegt ég veit. Ég byrjaði samt á lopapeysu um daginn og hef ekki enn tekið mér pásu, þannig að nú er ég búin með bolinn og byrjaði á fyrri erminni í gær, kannski kemur þessi lopapeysa ekki til með að taka rúma 8 mánuði í prjónun (það er orð) eins og fyrsta peysan. Jæja, ég ætlaði bara að skrifa pínu hérna inná svo þetta væri nú ekki ógurlega tómlegt. Farin að snýta mér
obless
Skrifað í Uncategorized | 2 ummæli »
Höfundur: bustolpi á 9 september, 2008
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »